Sögusýningar
Bæklingar
Skólahald og kveðskapur




Laugardaginn 15. ágúst var opnuð sýning á vegum Snjáfjallaseturs um skólahald í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu í húsakynnum heimangönguskólans sem var á Lyngholti á Snæfjallaströnd á árunum 1936-1947. Gefinn hefur verið út ritlingur af þessu tilefni sem fylgir sýningunni úr hlaði.

Rit um skólahald.

Skólahúsið á Lyngholti hefur nú verið gert upp og er í göngufæri við samkomuhúsið Dalbæ þar sem var kvæðadagskrá á vegum Snjáfjallaseturs. Þar var kynnt útgáfa á geisladiskinum Heyrði ég í hamrinum, en þar heyrast raddir fyrrum ábúenda á Ströndinni sem kveða og segja frá ýmsum þjóðlegum fróðleik. Upptökurnar voru gerðar af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Rósa Þorsteinsdóttir hélt erindi um söfnun þjóðfræðiefnis og kveðskapar á vegum Stofnunar Árna Magnússonar og Ása Ketilsdóttir og Steindór Andersen kváðu formannavísur, sveitavísur, barnagælur og fleira.

Skoða Fréttabréf Snjáfjallaseturs.