Sögusýningar
Bæklingar
Endurvinnsla með hjartanu



Almanak SORPU 2009
Texti með myndinni


Almanak SORPU er komið út en það er unnið í samstarfi við Safnasafnið á Svalbarðsströnd sem lánaði flest verkin í það. Verkin eiga það sameiginlegt að vera unnin úr verðlausum hlutum sem í höndum listamannanna öðlast ævintýraljóma. Þau spretta úr einlægri sköpunarþörf og einstöku næmi fyrir umhverfinu. Drasli er breytt í dýrgripi sem kæta sálina og opna hugann. Þarna er á ferðinni endurvinnsla í sinni tærustu mynd. Auk þess er almanakið fullt af áhugverðum upplýsingum um endurnýtingu og hvernig hægt er að draga úr þeim úrgangi sem fer til urðunar. Almanakið fæst gefins á starfsstöðvum SORPU svo lengi sem birgðir endast. 

Sjá almanakið