Steinn Steinarr
Aldarminning
Kómedíuleikhúsið - Öldin hans Steins
Skáldið Steinn Steinarr fæddist að Laugalandi í Nauteyrarhreppi árið 1908 og þann 21. júní síðastliðinn var dagskrá honum til heiðurs í Dalbæ. Þórður Helgason rithöfundur fjallaði um áhrif Steins á íslenskar bókmenntir. Ása Ketilsdóttir kvæðakona sem býr á fæðingarstað Steins sagði nokkur orð um tengsl hans við svæðið og flutti nokkur kvæða hans.
Elfar Logi Hannesson og Þröstur Jóhannesson fluttu á vegum Kómedíuleikhússins leikþáttinn BÚLÚLALA – öldin hans Steins sem fjallar um skáldið með söngvum og gítarundirleik og sönghópur frá Hólmavík flutti nokkur ljóða Steins sem gerð hafa verið lög við.