Frá sýningunni um Pál Steingrímsson.
Páll Steingrímsson
Heima & heiman
Sýning um Pál Steingrímsson kvikmyndagerðarmann var opnuð í Byggðasafni Vestmannaeyja þann 6. nóvember. Páll er ættaður úr Vestmannaeyjum og eru tengslum hans við Eyjarnar gerð nokkur skil á sýningunni og jafnframt ferðum hans um heiminn í leit að myndefni sem oftast nær tengist sambúð manns og náttúru. Sögumiðlun tók saman handrit sýningarinnar og sá um hönnun.
Hér er hægt að skoða frétt á RÚV sem birtist þann 8. nóvember.