Kaldalón og Kaldalóns
Sigvaldi Kaldalóns og Margrethe
kona hans árið 1919.
Á skírdag, fimmtudaginn 9. apríl kl. 17 verður opnuð sögusýningin Kaldalón og Kaldalóns í sal Tónlistarskólans á Ísafirði, en hún fjallar um tónskáldið og lækninn Sigvalda Kaldalóns og tengsl hans við Djúpið. Sigvaldi Kaldalóns kenndi sig við Kaldalón, en hann bjó á Ármúla og starfaði þar sem héraðslæknir á 2. áratug 20. aldar. Þar samdi hann mörg sín þekktustu lög, Þú eina hjartans yndið mitt, Ég lít í anda liðna tíð, Svanurinn minn syngur, Hamraborgin og mörg fleiri. Við opnun sýningarinnar munu ísfirskar listakonur flytja nokkur lög eftir Sigvalda. Arnþrúður Gísladóttir leikur á þverflautu og Herdís Anna Jónasdóttir syngur. Meðleikur á píanó verður í höndum Sigríðar Ragnarsdóttur. Guðfinna Hreiðarsdóttir mun jafnframt kynna bók sína um Höllu skáldkonu og Ólafur J. Engilbertsson mun fylgja sýningunni úr hlaði með stuttu erindi. Að sýningunni og dagskránni stendur Snjáfjallasetur í samstarfi við Tónlistarskólann á Ísafirði og Tónlistarfélag Ísafjarðar. Sögumiðlun ehf sá um gerð sýningarinnar. Sýningin verður opin á föstudaginn langa og laugardag fyrir páska kl. 15-17 báða daga og mun standa í sumar. Sýningin nýtur styrks frá Menningarráði Vestfjarða.