Saga Ferðafélags Íslands
Frá sýningu í sal FÍ.
Í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 hefur verið opnuð sýning um 82ja ára sögu Ferðafélags Íslands. Sögumiðlun sá bæði um hönnun og textagerð sýningarinnar. Þar er rakinn aðdragandi stofnunar Ferðafélagsins, fjallað um markmið þess, félagsstarf, útgáfustarf, ferðir félagsins í gegnum tíðina og skálabyggingar auk annarrar starfsemi.