Þjónusta
Sýningar
Sögumiðlun ehf veitir ráðgjafarþjónustu
varðandi sýningar, söfn og setur, sé þess óskað. Fyrirtækið býr yfir þekkingu
og reynslu á sviði safnastarfs, markhópamiðunar sýninga, fjármögnunar
menningarverkefna og viðburðastjórnunar. Sögumiðlun hefur t.a.m. veitt félaginu
Matur - saga - menning ráðgjöf varðandi stefnu, markhópa, samstarfsaðila,
fjármögnun, sýningahald og aðra starfsemi.
Kynningarefni
Sögumiðlun tekur einnig að sér gerð
ýmis konar kynningarefnis, s.s. bæklinga, powerpoint kynninga, fræðsluefnis,
skiltagerðar, netborða o.fl.
Myndskreytingar
Sögumiðlun getur einnig tekið að sér ýmis konar myndvinnslu, t.d. myndskreytingar á veggi eða í útgefið efni fyrirtækja.
Fyrirlestrar
Gyða S. Björnsdóttir tekur að sér að halda fyrirlestra um flokkun úrgangs og endurvinnslu. Þar er leitast við að svara spurningum eins og Hvers vegna ættum við að flokka og endurvinna úrgang? Hvaða efni er hægt að flokka, hvað verður um úrganginn og hvaða nýju vörur er hægt að búa til úr honum? Hefðbundinn fyrirlestur tekur um klukkustund og hentar t.d. fyrirtækjum sem vilja virkja starfsfólk til þess að endurnýta úrgang bæði á vinnustað og heimafyrir.